Þarna sést ég kenna leikinn og jú þetta er frekar kjánalegt.
Hugmyndin var bara að þetta yrði fyndið, með fullan sal af kellum flestum á eftirlaunaaldri. Það var nú ekkert lítið sem leikurinn sló í gegn og það sem eftir var kvöld blökuðu konurnar reglulega vængjum. (Það var svona þeirra leið til að eiga samskipti við mig þar sem við tölum ekki sama tungumál. Öndin varð sameiningartákn.)
Þarna sjást eldri borgararnir blaka vængjum eins og þeim sé borgað fyrir það.
Þegar ég kenndi leikinn lét ég fylgja með sögu af minni dásamlegu frænku og nöfnu sem nú er þriggja og hálfs en ég kenndi henni leikinn fyrir nokkrum vikum síðan. Ég gerði þetta með miklum stæl, gólaði lagið og lét öllum illum látum í dansinum. Að þessu loknu bauð ég frænku minni að taka undir söng og dans en hún svaraði feimin: “Ég geeeet’ðað ekki.” Og ég svaraði: “Nú HA? Af hverju ekki?” Og nafna svaraði: “Af því ég er steeelpa.” Þá heyrðist í pabba hennar inni í eldhúsi: “Úbs, hún sagði þetta ekki við rétta manneskju.”
Mín túlkun á þessu var sú að jafnvel þegar börn eru bara þriggja og hálfs, og enginn hefur sagt við þau hvernig stelpur eigi að vera og hvernig strákar eigi að vera, þá eru þau búin að pikka upp hellling af skilaboðum í umhverfinu. Þannig eru þau búin að læra alveg fullt um það hvernig karlar og konur haga sér í samfélaginu. Ef litlar stelpur læra úr umhverfi sínu að þær eigi að vera sætar, góðar og þægar þá er litli andarleikurinn líklega of hávær, plássfrekur og kjánalegur.
Við þetta má svo bæta að viku síðar kenndi ég frænku leikinn aftur og tók hún þá undir af krafti. Þannig að auðvitað eru kynhlutverk ekki skrifuð í stein og þeim er hægt að breyta. Og að auðvitað finnst öllum litlum krökkum gaman að taka þátt í fjörugum og kjánalegum leikjum.
En þetta góða grín mitt á kvöldvökunni vatt auðvitað upp á sig og ég var beðin um halda fyrirlestur fyrir menntasvið Sakai borgar. Og auðvitað að kenna andarleikinn. Allir sem fyrirlesturinn sátu eru kennarar sem nú stýra skólum eða vinna á menntasviðinu og mér skilst að kennarar hafi gaman af því að læra nýja leiki. Þannig að það varð úr að ég hélt fyrst afskaplega alvarlegan fyrirlestur um vandamál heimsins og skelfilega stöðu kvenna í fátækustu löndum veraldar. Og svo var svissað yfir í litlu öndina til þess að skýra hvað gender (ísl. kyngervi / félagslegt kyn) þýðir.
Þarna er ég að kenna skólastjórnendum Sakai borgar að leika endur.
Á þessu augnabliki hvarflaði það að mér að það væri einhver að gera grín að mér og ég hugsaði: "Hvernig stendur á því að ég er í Japan að kenna skólastjórum að dansa Ein lítil önd með væng?"
Og skólastjórarnir blökuðu vængjum og dilluðu stéli...
...og kláruðu svo leikinn með því að mynda glæsilegan gogg.
13 comments:
Nú er ég farinn á Wall Street með höfuð, herðar, hné og tær. Hlýt að ná jafngóðum undirtektum þar og þú með þinn leik í Japan.
Alveg pottþétt! En þú ættir að fylgjast vel með því bráðum verður færsla um það hvernig Japanir skiptast á nafnspjöldum. Það á eftir að hjálpa þér á Wall street ef fólk veit hvað þú heitir.
ok first things first
þú ert með killer legs...hélt fyrst að þetta væri mynd af Shakiru
í öðru lagi þá er þetta svo súrrealískt að það hálfa væri nóg
Eva
Alþjóðleg menningartengsl eru engin gamanmál:)
Hlógum öll í kór.
M,P og SS
ahaha vá hvað þetta er fyndið!
Dásamlegt að lesa um litlu öndina. Sé þetta fyrir mér þar sem ég iðka þennan leik af og til. Er meira að segja búin að læra þetta á dönsku frá dönskum vinnufélaga...en lille, en lille, ..............hló dátt. Kveðja frá Ísaf. Ein lítil biður að heilsa: Deinunn í Jakamm
Hahahaha, Deinunn í Jakamm...! Bið að heilsa henni líka :o)
Hvað getur maður sagt annað en jesúmaríajósep!
Stórkostlegar færslur og stórkostleg skörun menningarheima
Litla mannfræðihjartað slær hratt við lesturinn.
Banzai, Steinunn-san!
Algjörlega magnað.
Þú ert alveg óttalega skemmtilegur penni líka, Steinunn.
Svona getur raunveruleikinn stundum verið steiktari en konu getur órað fyrir.
Algerlega 100% tær snilld. (og hláturinn legnir lífið:-):-):-)
Krúttlegt og um leið stórkostlegt með alla skólastjórana og allir karlar eða hvað?
Verð að sýna skólaliðinu þetta.
kv. Edda
Ó Steinunn, þú ert yndislega fyndin! Hversu kómískar geta aðstæður eiginlega orðið - sá líka myndbandið hjá Ragga :)
Annars er það svo sannarlega umhugsunarvert að þriggja ára snjáldru finnist ekki viðeigandi fyrir stelpur að dansa lítinn dans!
Kram frá Gautó, Fríða
Post a Comment