Friday, June 4, 2010

Pólitískur frumskógur

Undanfarna daga hef ég verið að reyna að átta mig á japanskri pólitík. Ég er búin að spyrja fólk spjörunum úr en öll svör sem ég fæ eru loðin og tvíræð. Sumt á sér greinilega langa sögu með ólíkum sjónarmiðum sem erfitt er að setja sig inn í einn, tveir og þrír. Forsætisráðherrann sagði af sér á miðvikudaginn og fjármálaráðherrann tók við stöðu forsætisráðherra í dag.

Báðir þessir gaurar koma úr demókrata flokknum en hann vann í kosningunum í fyrra og hrakti frjálslyndu demókratana úr ríkisstjórn eftir um 54 ára samfellda setu þeirra þar! Frjálslyndu demókratarnir skilgreinast sem miðju-hægri íhaldsflokkur en demókratarnir sem miðjuflokkur sem hvorki vill of frjálsan markað né pjúra velferðarríki. Einhvers konar millileið. En aðallega eru þetta umbótasinnar sem vilja kollvarpa gamaldags stjórnmálum hinna sem setið hafa áratugum saman í ríkisstjórn og gert stjórnsýsluna of bjúrókratíska og stífa.

Í kosningabaráttunni lofaði Yukio Hatoyama, fráfarandi forsætisráðherra, að losa íbúa Okinawa, sem er lítil eyja syðst í japanska eyjaklasanum, við risastóra bandaríska herstöð sem er þar. Ólíkt Suðurnesjamönnum gerðu íbúar Okinawa háværar kröfur um að losna við herstöðina m.a. af öryggis- og umhverfisástæðum. Hatoyama virðist hafa gefið þessi loforð án áætlana um hvert ætti þá að fara með herstöðina en í ljós kom að ekkert annað hérað í Japan hafði nokkurn áhuga á að taka við herstöðinni. Og ekki vilja Bandaríkjamennirnir fara. Sérstaklega ekki núna þar sem þessi staðsetning er strategískt mikilvæg vegna aukinnar spennu á Kóreuskaga eftir að Norður-Kóreumann hafa verið sakaðir um að sökkva suður-kóresku herskipi fyrir stuttu.


Hatoyama hefur gert nokkur mistök. Þar má nefna fjármálaskandal, svikin loforð og þessa skyrtu.


Þannig að það var vesen með Okinawa og á föstudaginn fyrir viku voru sett lög um að herstöðin skyldi vera þarna áfram (en þó voru einhverjar breytingar sem ég veit ekki nákvæmlega hverjar eru). Einn ráðherra var alveg brjálaður og neitaði að skrifa undir lögin. Það var Mizuho Fukushima en hún var önnur tveggja kvenna í 18 manna ríkisstjórn Japan og auk þess ekki úr ráðandi flokknum í ríkisstjórnarsamstarfinu heldur úr hinum pínulitla sósíaldemókratíska flokki. Þegar Fukushima neitaði að skrifa undir lögin rak forsætisráðherrann hana umsvifalaust úr ríkisstjórninni.


Fukushima var rekin úr ríkisstjórninni og þar með fór hlutfall kvenna úr 11% niður í 5,5%.

Mér finnst Fukushima frekar töff. Hún er oft í bleikum jakka og röndóttum kjól þannig að hún er algjört stílbrot við alla jakkafatakallana. Og heimasíðan hennar er svo sannarlega bleik! http://www.mizuhoto.org/ Ég hitti hana fyrir tveimur vikum en þá var henni mikið í mun að ræða aðeins Bobby Fischer því hún vann að málinu hans hér í Japan. Svo fannst henni kúl að það væri lesbía forsætisráðherra á Íslandi en sjálf hefur hún mikið unnið að réttindum samkynhneigðra í Japan. Hún er líka mikill femínisti enda gengdi hún stöðu ráðherra jafnréttismála. Ekki veit ég hvort eftirmaður hennar verður jafn öflugur en það þarf virkilega að bæta stöðu japanskra kvenna í pólitík en nú skipa þær um 10% sæta á þinginu. Það er vel undir heimsmeðaltali sem er 18%.

Okinawa málið dró greinilega dilk á eftir sér þó forsætisráðherrann hafi fengið lögin í gegn og það endaði með afsögn á miðvikudaginn. Mér sem Íslendingi finnst það sérkennilegt hvað fólk er afsagnaglatt því það þarf jahhh... að ganga aðeins meira á heima til þess að til þessa komi! Það verður spennandi að sjá hvað gerist á næstunni í japanskri pólitík en næstu kosningar verða í júlí þar sem kosið verður í efri deild þingsins. Mér skilst að það sé þing þeirra frægu og ríku og hafi í raun lítil völd. Ef ég skil eitthvað meira í því fljótlega mun ég skrifa um það hér.

6 comments:

Elna said...

Glæsilegt blogg, var að klára að lesa í gegnum það allt og þetta er svaka ævintýri. Þú ert frábær penni og gaman að sjá myndirnar með þessu. =D

Heiða said...

Hæ Steinunn, það er ótrúlega gaman að lesa bloggið þitt ég hló alveg upphátt að forseta tréplöntuninni :) kv, Heiða (hress)

Sigríður Erla said...

Sæl Steinunn mín og takk fyrir að fá að fylgjast með þessu ótrúlega ævintýri þínu. Ég viðurkenni að ég var svolítið abbó út í Japani þegar þeir fengu þig, en nú sé ég að þetta er ómetanleg æfing fyrir næstu embætti hjá þér :)
Hafðu það himneskt - sej

Inga said...

Steinunni sem forseta! Þetta er alveg rosalega skemmtilegt blogg! Ég hlakka til á hverjum degi að lesa það!! Þvílíkt ævintýri!

Anonymous said...

Sæl Steinunn, gaman að geta fylgst með hér, skemmtileg skrif hjá þér, kveðja, Selma og Þröstur

Steinþór said...

Vá!!!

Ég væri sko til í að fá þig sem forseta Steinunn.
Annars bestu kveðjur frá hinum RöSSSurunum héðan af Grensásveginum.

Steinþór