Samferðakonur mínar taka andköf því þetta er enginn annar en Hakuho, meistarinn sjálfur í Súmóglímu. Það verður að segjast að þegar súmóglímukappar eru annars vegar þá fer það ekki fram hjá manni. Í fyrsta lagi af þeirri augljósu ástæðu að þeir eru vel yfir meðalþyngd í landi þar sem fáir eru það, en í öðru lagi vegna þess að þeim ber skylda til þess að vera í hefðbundnum japönskum sloppi, sandölum og með hnút í hárinu þegar þeir eru á almannafæri.
Súmókapparnir tveir forðuðu sér frá fjölmiðlafárinu og inn í miðasölu. Og á eftir kom ég og föruneyti mitt. Meðan Hakuho beið eftir að aðstoðarmaður hans keypti miða horfði ég á þar sem fjöldinn allur af fólki rak upp stór augu og kom inn í miðasöluna til að taka í höndina á honum. Flestir sem fram hjá fóru rifu upp gemsana til að ná honum á mynd. Í augnablikinu er Hakuho eini súmókappinn sem er Yokozuna, þ.e. í æðstu tign en það er mismunandi eftir tímabilum hve margir þeir eru, stundum enginn, stundum fjórir.

Hér er Hakuho að performera vígsluathöfn sína sem Yokozuna.
Jæja, eftir að fest höfðu verið kaup á miða hélt ég út í lest ásamt samferðakonum. Þar kom í ljós að sætið mitt var hinum meginn við ganginn frá Hvíta Fönixnum en það er merking nafnsins Hakuho. Ég gaf mig auðvitað á spjall við þennan 193 sentímetra og 150 kílóa vinalega risa með hjálp vinkonu minnar. Hakuho talar ekki ensku frekar en nokkur annar hér en í ljós kom að hann er 25 ára, frá Mongólíu og hefur búið í Japan í 10 ár. Við þetta bætti svo Wikipedia að þegar hann kom fyrst til Japan til að reyna fyrir sér var hann aðeins 62 kíló og enginn vildi taka við honum í þjálfun. Á aðfangadag árið 2000, á síðasta degi tveggja mánaða ferðar sinnar til Japan, fékk Hakuho svo óvænt inni hjá þjálfara. Síðan þá hefur leiðin aðeins legið upp á við.
Þarna erum við félagarnir í lestinni.
Ég lét þennan nýja vin minn hafa nafnspjaldið mitt og hann bauð mér í staðinn upp á ískaffi. Hann sagði mér svo að stóra systir hans sem talaði ensku væri að koma til Japan og ætti fáa vini hér. Því ætlaði hann að láta hana hafa nafnspjaldið mitt, hún væri stór eins og ég. Þannig að það er aldrei að vita nema ég fái upphringingu frá mongólskri systur súmóglímukappa. How about that?
Einum og hálfum tíma síðar var Hakuho kominn á áfangastað. En það sem beið hans var ekki svo skemmtilegt. Hann var nefnilega á leiðinni á blaðamannafund til að ræða nýuppkomið hneyksli í súmóheiminum. Þannig er mál með vexti að í ljós hefur komið að tugir súmóglímukappa hafa verið að taka þátt í hafnabolta veðmálum sem eru skipulögð af japönsku mafíunni. Þarna er verið að spila um gríðarlega háar upphæðir og þetta er alveg kolólöglegt. Það að þetta skuli koma upp meðal súmóglímukappa er áfall þar sem súmó fylgir langri hefð þar sem heiður og stolt keppenda er í fyrirrúmi. Einnig fylgja súmkappar ströngum reglum, t.a.m. mega þeir ekki keyra bíl eftir að súmókappi lenti í bílslysi fyrir einhverjum árum síðan. Verði þeir uppvísir að því að keyra geta þeir fengið sektir eða verið vikið úr keppni.
Ef ég skil rétt þá komst upp um einn af liðsmönnum Hakuhos vegna þessara veðmála en sjálfur hefur Hakuho neitað því að hafa tekið þátt. Þetta mál skekur nú súmóheiminn ekki síst vegna þessara tengsla sem þetta hefur við mafíuna og skipulagða glæpastarfsemi, en það er auðvitað í hrópandi ósamræmi við þær reglur sem súmóglímuköppum er gert að lifa eftir.
"Heyrðu elskan, viltu ekki bara skella barninu í bikarinn?" gæti Hakaho verið að segja hér við konuna sína, en hann er giftur, tveggja barna faðir.
Að skilnaði gáfum við hinum hvíta Fönixfugli UNIFEM blævæng sem ég vona að hann hafi blakað á blaðamannafundinum.
9 comments:
Vóv ég er á leiðinni - þetta lítur vel út súminn getur haldið á mér...
Kv. Edda fr.
Ég trú þessu ekki. Nei. Ég bara trúi þessu ekki. Sit hér við skrifborðið mitt og les hverja bloggfærlsuna á fætur annarri frá þér. Þær eru allar alveg bráðfyndnar og spennandi. En ég er bara hættur að trúa því að þetta geti verið satt.
Hvítir hanskar, stigi og forsetaborðar, dansandi skólastjórar, röntgen-púður, Hollywood-stadus og nú súmóglímukóngur með mafíutengsl. Þetta bara getur ekki verið.
En þó þetta sé allt logið er mjög skemmtilegt að lesa bloggið og vona ég að þú verðir jafn dugleg áfram.
Kv. St.
Þetta er snilld! Litum á nokkur video með kappanum á youtube t.d. http://www.youtube.com/watch?v=pcAABExweJY&NR=1 Þetta lítur út eins og bolar að kljást en þetta eru greinilega miklar stjörnur.
Kveðja, M&P
Þú ert alveg ótrúlega sniðug Steinunn! Alveg trúlega sniðug!
Bestu Handsomu Kawai Kveðjur
Hildur Steinþórs
Ótrúlega gaman að fylgjast með þér í Japan Steinunn-san og verst að þú skulir ekki getað bara bloggað daglega eða jafnvel oftar! Annars var Sean Connery hérna í kaffi hjá okkur áðan ásamt fríðu föruneyti...hlýtur að vera orðin spennt að fá hann til þín!
kveðja frá mér og mínum!
Ég held bara að ég sé búin að finna mér eitthvað að gera í Japan. Get nú byrjað betur en í 62 kílóum.
Já Raggi minn, þú gætir slegið tvær flugur í einu höggi og orðið líka heimadrekkandi húsfaðir. Mér skilst að galdurinn á bak við aukakílóin hjá Súmó gaurunum sé allur bjórinn sem þeir drekka með hádegismatnum.
Sjonni Konráðs, þetta líkar mér!
Grænt te, (jafnvel í jelly)hjálpar við þyngdarstjórnun. :-)!
Post a Comment