Thursday, June 10, 2010

Steinunn fer í líkamsrækt

Áðan keypti ég mér kort í ræktina og þakkaði fyrir það að hafa aldrei fengið mér tattú. Þá hefði ég nefnilega ekki uppfyllt þá skilmála sem gerðir eru til korthafa í líkamsræktarstöðinni. Skilyrði nr. 1 var: “Ef þú ert í mafíunni þá ertu ekki velkominn í Konami ræktina.” Skilyrði nr. 2 var: “Ef þú ert með húðflúr ertu ekki velkominn í Konami ræktina.” Skýringin sem vinkona mín gaf mér er sú að ef þú ert með húðflúr þá ertu í mafíunni. Þannig er nú það.

Líkamsræktartíminn sjálfur var frekar skrýtinn. Þetta var sem sagt Zumba tími en kennarinn bókstaflega þagði allan tímann. Það er ekki alveg sama “Eru ekki allir hressir haaa??? OG Í STUÐI? Vúhúúú” stemmningin og á Íslandi. Ég hélt ég myndi aldrei segja þetta en ég saknaði þess. Kennarinn, kona á miðjum aldri í hip-hop outfitti með derhúfu, var þó afskaplega ánægð með nærveru mína og kom og tók í höndina á mér í lok tímans.

Google translate hefur aðstoðað mig við að þýða stundaskrá ræktarinnar og á morgun fer ég í jóga sem krefst þess ekki að kennarinn sé í stuði.

3 comments:

Anonymous said...

Hæ Steinunn okkar.
Takk fyrir frábært blogg, bæði fróðlegt og fyndið. Þetta er eins og hjá H.C. Andersen, en við cykleðum að gröf hans í dag í rigningu og sudda en bara gott og skemmtilegt.
Mútta, pápi og andarunginn.

Steinunn said...

Gaman að heyra frá ykkur! Næsta færsla hér á blogginu mun einmitt fjalla um litla önd og er tileinkuð andarungum stórum sem smáum! :o) Ha'det bra!

akarnid said...

All right, Konami gymmið hljómar vel. Ég þekki Konami sem vel virtan japanskan tölvuleikjaframleiðanda, ætli það séu einhver tengsl þarna :)