Um daginn tók ég þátt í workshopi með fullt af konum um jafnréttismál. Þar barst mér spurning frá einni þeirra sem ég hef verið að velta fyrir mér síðan. Hún var svohljóðandi: "Þú ert svo falleg að þú gætir verið módel eða leikkona. Af hverju ertu eiginlega að vinna að jafnréttismálum?"
Þessi spurning segir bara svo mikið. En lykilorðin eru fjögur: Falleg, módel, leikkona, jafnréttismál.
Leikkona
Svona fyrir það fyrsta, er fegurð það eina sem leikkonur þurfa að hafa? Þurfa þær ekki að geta leikið?
Falleg
Varðandi það hvað ég er falleg þá virðist klisjan: Ljóst hár, hvít húð, blá augu og sentímetrarnir mínir 178 eiga vel upp á pallborðið hér í Japan. Ég fæ að heyra það oft á dag hvað ég sé falleg. Konurnar segja meira að segja: "Þú ert miklu fallegri en dóttir mín." Hver segir svona!? Ég var síðast stoppuð úti á götu í gær af manni sem þurfti langan umhugsunarfrest til að rifja upp menntaskólaenskuna sína og svo stamaði hann út úr sér: "You are so beautiful." Svo ekki sé minnst á fund minn með næstæðsta stjórnanda japanska utanríkisráðuneytisins á eftir ráðherranum sjálfum. Hann spurði mig hvort ég væri á lausu! Ég svaraði: "nonohohonoo..." hlæjandi taugaveiklunarhlátri á meðan ég starði á giftingarhringinn sem hann var með á fingrinum.
Satt að segja þá finnst mér þetta plain óþægilegt. Í íslenska samhenginu er ég engin fegurðardrottning og það hefur enginn beðið mig um að vera módel síðan Kolla Casablancas stoppaði mig í Kringlunni þegar ég var 13 ára (takk mamma og pabbi fyrir að benda mér á klikkunina í því).
Módel
Og svona í framhaldi af því. Er það að vera módel draumur hverrar konu? Ef ég frá náttúrunnar hendi uppfylli nógu marga af fyrirfram gefnum stöðlum til þess að vera módel er þá engin ástæða fyrir mig til að gera nokkuð annað? Mér finnst í fyrsta lagi þessir staðlar asnalegir. Í öðru lagi er asnalegt að gera ráð fyrir því að konur sem uppfylla staðlana hafi skilyrðislausan áhuga á og draumóra um að verða módel.
Jafnréttismál
Eins og við vitum öll þá er jafnrétti kynjanna aðeins áhugamál ljótra, ófullnægðra, biturra og loðinna lesbía. Þessi staðalmynd er ennþá sterkari í Japan, þar sem konur sem sjálfar sinna jafnréttisbaráttu virðast trúa þessu líka upp að einhverju marki. Ég sumsé rústa þessari staðalímynd að þeirra mati og á í ofanálag kærasta! Og þá eru allir voðalega hissa yfir því að ég skuli láta mig jafnrétti varða (en ætla mér á sama tíma að umturna umræðu um jafnréttismál í Japan!)
Svar mitt við spurningunni þegar ég fékk hana var eitthvað á þessa leið: "Ef ég væri leikkona væri ég sennilega að berjast fyrir fleiri hlutverkum fyrir konur því eins og flestir vita eru þau miklu færri en karlhlutverkin. Þannig að ég væri sennilega að sinna jafnréttismálum hvar sem ég væri." Sem leiðir hugann að því hvort hlutverkin séu líka færri í raunveruleikanum...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
10 comments:
ég er afar stolt af að þekkja ÞIG
Heyr, heyr Steinunn! Japanir eru mjög heppnir að fá þig til starfa. Strax við komuna ertu farin að vinna á klisjunum.
Ég var að lesa fleiri færslur og verð að segja að þessi blokkflautusveit er snilldin ein! Svo veitir held ég bara ekkert af að eiga 100 mömmur og fá góðar móttökur í nýju landi þar sem svona margt er framandi - bara að þær éti þig ekki alveg... :)
Þú ert svo mikill snillingur Steinunn :) Er að elska þetta blogg!! Hlakka til að hitta þig við heimkomuna... þangað til sendum við þér bestu kveðjur út í heim.
Dagný, Bjarni & Haraldur Bjarkan
Snilli tilli ertu! Ilove it and I love you!
Það er ekki leyndarmál hver sendi kimmentið hér á undan - það er Edda A frænka, Er að reyna að finna út úr þessi hvernig ég festi kommentinn inn!
Sæl Steinunn.
Veit ekki hvort þú manst eftir mér en við sátum einu sinni saman kúrs í útvarpsþáttagerð. (Ég þessi bandólétta.) Rakst hér inn af DV-bloggi.
Þetta eru áhugaverðir þankar. Og ég verð alltaf jafnhissa þegar ég heyri eitthvað svona. Maður heldur að allir í heiminum hljóti að vera hættir að hugsa svona, en svo ... ég varð einmitt fyrir femínísku menningarsjokki bæði við búsetu í Frakklandi og Skotlandi.
Spennandi verkefni, og staður, sem þú ert að fást við. Ég ætla að fylgjast með þér.
(Kann betur við að láta vita af svoleiðis ef ég kannast við fólkið.)
Við fjölskyldan á Ljósó erum enn of þotuvönkuð til að skrifa annað vitrænt en eina saknaðarkveðju úr Reykvískri sumarnótt með títtspiluðu lagi vina okkar í Pink Floyd í bakgrunninum, að sjálfsögðu.
Við sjáumst á internetinu!
- Sandra, Steinþór og kötturinn Logi
You have a rot of wolk ahead of you, Steinun-san...
a herr of a rot of wolk...
Takk fyrir kveðjurnar kæru vinir!
Sigga Lára, vertu velkomin! :o)
Dagný, ég bið sérstaklega vel að heilsa Haraldi Bjarkan ...sem verður orðinn fullorðinn krakki þegar ég hitti hann loksins!
Steinunn draumakona - þú ert svo ótrúlega mikil... leiksæta. Hehe. ÉG er að spá í að taka nákvæmlega þessa færslu hjá þér og láta nemendur mína fá þetta. Einmitt skilaboðin til ungra stelpna - nóg er áreitið á þær í þessa veru. +
kveðja frá loðnu ljótu Hönnu í Breiðholtinu
Post a Comment