Saturday, December 11, 2010

Útskrifuð úr æfingabúðum fyrir verðandi forseta


Dyggir lesendur minnast þess væntanlega þegar ég gróðursetti tréð hér að ofan íklædd hvítum hönskum og skreytt borðum, eins og fjallað var ítarlega um í færslunni Æfingabúðir fyrir verðandi forseta. Þetta var aðeins forsmekkurinn að því sem í vændum var. Síðan þessu ágæta tréi var plantað hef ég nefnilega tekið þátt í fjöldanum öllum af viðlíka athöfnum og ætti nú að vera orðinn sérfræðingur á þessu sviði. Hér kemur smá yfirlit.

 

Þessi mynd er tekin á fiskihátíðinni miklu. Þarna er um að ræða hefðbundna opnunarathöfn þar sem skipuleggjendur sitja öðru megin og heiðursgestir hinu megin. Ég valdi nú þessa mynd af því við erum í svo fínum jökkum. Góð tilbreyting frá einkennisbúningunum, jakkafötum og drögtum, sem er venjan.


Mitt hlutverk sem heiðursgestur á hátíð sem þessari er að standa upp, brosa og hneigja mig fyrir skipuleggjendum og gestum þegar nafnið mitt er kallað. Í þessu tilviki, sem ekki er einangrað, létu kynnarnir einhver orð falla um fegurð mína við fagnaðarlæti viðstaddra.

Og hneigja....



Hérna var ég dómari á myndlistasýningu. Já, það eru ýmis verkin sem maður tekur að sér... Ég mætti því eldsnemma um morgun í verslunarmiðstöð þar sem sýningin fór fram ásamt öðrum fyrirmennum borgarinnar, drakk grænt te, borðaði japönsk sætindi og rölti svo um og skoðaði herlegheitin.


Ég valdi fyrir rest ljósmyndina af þessari hressu stelpu þarna á veggnum. Vinningshafinn hlaut að launum viðurkenningarskjal um að vikomandi hefði hlotið UNIFEM verðlaunin 2010. Það var kollegi minn á skrifstofunni sem útbjó skjalið og fylgdi leiðbeiningum frá skipuleggjendum sýningarinnar um að hafa það vestrænt. Það þykir víst eitthvað fínt.


Þessi mynd er tekin á opnunarathöfn Sakai Festival 2010. Þarna eru heiðursgestirnir búnir að stilla sér upp á rauða dreglinum, tilbúnir að hleypa blöðrunum upp í loftið.


Það var búið að para okkur saman, tvö og tvö, með spotta til þess að toga netið ofan af blöðrunum. Ég er þarna með félaga mínum, víetnamska ræðismanninum, en konsúlatið hans er einmitt hér í þessari sömu borg.


Allt gekk að óskum, blöðrurnar svifu upp í loftið og hátíðarhöldin hófust.


Í lok október átti UNIFEM skrifstofan svo 1 árs afmæli. Það var auðvitað haldið upp á það með blómaskreytingum, kökum og slaufuskreyttum míkrófón.


Og svo þessari frábæru rúllu sem starfskonur Kvennasamtakanna voru búnar að koma fyrir í loftinu um morguninn.


Þarna erum við að toga, ég, guðmóðirin og svo saksóknari frá Osaka sem var staddur í byggingunni en hann þótti nógu merkilegur til að toga með okkur.


Hirðljósmyndarinn stóð auðvitað vaktina og náði þessu öllu á mynd.


Snilld. Þarna er borðinn kominn niður. Á honum stendur: Tengslaskrifstofa UNIFEM í Japan 1 árs


Í Japan eru tvær vikur tileinkaðar baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og lýkur átakinu þann 25. nóvember á alþjóðlegum degi afnáms ofbeldis gegn konum. Fjólublái borðinn er notaður sem tákn gegn kynbundnu ofbeldi og af því tilefni tók ég þátt í athöfn til að vekja athygli á borðanum. Þarna er ég stödd í Umeda Sky Building og er nýbúin að binda borða á þetta ágæta borðatré undir söng stúlknakvartetts í fjólubláum kjólum.


Borðatréið var skilið eftir fyrir framan bíó í byggingunni og þegar ég kom aftur viku seinna var búið að binda fleiri borða á tréið. Voða fínt.


En það var ekki nóg að binda litla borða heldur var ákveðið að lýsa líka upp turn í Osaka með fjólubláum ljósum. Við notuðum þykjustu sveifar til þess að kveikja á turninum sem eru í laginu eins og turninn sjálfur. Forstjóri fyrirtækisins sem rekur turninn var í ægilegu stuði en það er hann sem er með risaslaufuna framan á sér á myndinni.


Osaka turninn sést þarna í baksýn, fjólublár í tilefni dagsins.


Það var kveikt á fleiri turnum en í Osaka og þann 25. nóvember lá leið mín til Tokyo þar sem ég tók þátt í svipuðum viðburði til þess að baða Tokyo Tower í fjólublái ljósi. Aftur vorum við með þykjustu hnappa en þarna er ég ásamt ráðherra jafnréttismála, söngstjörnunni, módelinu og leikkonunni Önnu Tsuchiya og fulltrúa frá frjálsum félagasamtökum sem aðstoða þolendur ofbeldis.


Í baksýn má sjá turninn. Það fór nú fulllítið fyrir fjólubláu ljósunum en það kannski skipti ekki málið af því þeir fjölmörgu blaðamenn sem mættir voru á staðinn höfðu lítinn áhuga hversu skært turninn skein því á sviðinu var stjarna sem skein skærar og þeir voru allir komnir til að sjá og heyra. Nei, í þessu tilviki var það ekki ég heldur hún Anna, sem betur fer.


Og að lokum, ein klassísk opnun þar sem klippt er á borða. Ég dáist að natninni við smáatriðin. Takið eftir rauða dreglinum, rauðu slaufunum sem við erum með í barminum og slaufunum sem er búið að binda á borðann þar sem hver og einn á að klippa. Að auki erum við öll með alveg eins flúruð gullskæri sem konur íklæddar hvítum hönskum, komu með á bakka og réttu okkur.

Alla vega, ef einhver þarf að opna eitthvað í framtíðinni þá get ég aðstoðað. Ég kann nokkur trix. Svo sé ég því ekkert til fyrirstöðu að ég taki við embætti forseta íslenska lýðveldisins næst þegar það losnar. Ég er búin að prófa flest þau verk sem forsetinn sinnir, nema kannski að leggja hornstein, en ef til þess kæmi þá gæti ég örugglega byggt á fyrri reynslu og leyst það af hendi án mikils undirbúnings.

Tuesday, November 23, 2010

Japan og jafnréttið

Það er kannski löngu kominn tími á að ég skrifi hér eitthvað um stöðu kvenna í Japan en það er með góðri samvisku hægt að segja að jafnrétti kynjanna sé verulega ábótavant hér í landi. Undanfarið hef ég haldið ansi marga fyrirlestra sem eiga nú að snúast um starf UNIFEM á heimsvísu en það er víst ekki hægt að fjalla um það sem gerist að heiman nema að skoða aðeins hvernig staðan er heima fyrir í leiðinni. Því hef ég dregið fram hina ýmsu stuðla og vísitölur til að gera hlustendum grein fyrir hvernig staða jafnréttis í Japan er í hnattrænu samhengi. (Það skal kannski tekið fram hér að starf mitt hjá UNIFEM í Japan snýst um fjáröflun í verkefni UNIFEM í þróunarlöndum en ekki að úrbótum á jafnrétti í Japan þó veruleg þörf sé á).

Í stuttu máli þá er japanska þjóðin vel menntuð, heilbrigð og efnahagslega vel stæð enda var Japan í 10. sæti af 182 þjóðum á lífsgæðalista SÞ (Human Development Index) í fyrra. Þegar mælt var svo hvort mikill munur væri á konum og körlum varðandi menntun, heilsu og innkomu (Gender-related Development Index 2007) lenti Japan í 14. sæti af 155 og mætti því leiða að því líkur að ekki sé verulegt ójafnrétti varðandi þessa grunnþætti.

Hins vegar er til annar kvarði sem mælir völd og eflingu kvenna (Gender Empowerment Measure 2009) og þar hrapar Japan niður listann og er í 57. sæti af 109. Þarna eru teknir inn þættir eins og fjöldi kvenna í stjórnunarstöðum, þátttaka í atvinnulífi og stjórnmálum og hlutfall kvenna á þingi. Japan lendir á eftir löndum sem eiga langt í land með að standa jafnfætis Japan hvað varðar efnahagslega velmegun, t.d. Namibíu, Costa Rica, Perú, Búlgaríu og Úganda. Japan lenti svo alveg sorglega neðarlega á jafnréttis mælikvarða World Economic Forum á þessu ári eða í 92. sæti af 132 löndum en það vill hins vegar svo til Ísland er í 1. sæti á sama lista.

Þessari staðreynd hef ég lýst yfir á þeim fyrirlestrum sem ég hef haldið undanfarið og fólk fer jafnvel að klappa fyrir mér og Íslandi og þeim frábæra árangri sem við höfum náð. Ég bendi þó snarlega á að fara varlega í fagnaðarlætin og sýni myndir frá 25. október síðastliðnum þar sem fleiri en 50.000 konur á Íslandi sáu ástæðu til að fara í bæinn að mótmæla slökum kjörum sínum og viðvarandi aðgerðaleysi þegar kemur að kynferðisbrotamálum. Í þessu mesta jafnréttisríki heims er sem sagt einnig að finna einhverjar fjölmennustu kröfugöngur kvenna fyrir bættri stöðu.

Ég held að þessi óánægja íslenskra kvenna með stöðu sína og baráttuhugur komi fólki hér almennt á óvart en ég sé líka kvikna einhver ljós hjá hlustendum. Það gerist auðvitað ekkert nema að bent sé hressilega á óréttlætið og kröfur lagðar fram um úrbætur. Kvennafrídagarnir á Íslandi vekja verðskuldaða athygli hér og þess má líka geta að ég hef fengið fjölda fyrirspurna um hvort hægt sé að nálgast barmmerkið með Kynjagleraugunum einhversstaðar. Nælan þykir með eindæmum töff og “kawai” eða sæt. Í þessu landi dúlludúska og tískulögga er krúttlegt og kúl barmmerki eitthvað sem gæti virkað.


Þarna sjást Þórdís Elva og lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins með kawai barmmerkið og reyndar önnur stærri kynjagleraugu á nefinu! (Mynd fengin að láni af Facebook prófíl skipuleggjenda Kvennafrídagsins 2010)

Myndirnar frá kvennafrídögunum á Íslandi virðast hrista upp í fólki og einnig sú staðreynd að við höfum náð 17 mínútna árangri á síðastliðnum 5 árum! Þetta þykir svona grátbroslegt. Einnig hefur sagan af mömmu í verkfalli um borð í fraktaranum árið 1975 fengið að fylgja með við mikla gleði áheyrenda. Ég fékk meðal annars tölvupóst frá karli sem sat með mér í pallborði fyrir stuttu þar sem hann sagði: “Your talk on the status of women in your country with photographs was very interesting. It was alomost provocative to the Japanese society which has been malfunctioning for a long time without real participation of women.” Þessi japanski karl hefur verið að vinna fyrir SÞ í Genf síðustu 25 árin og ég held að hann sé frekar sleginn yfir því að koma til baka til Japan og sjá hve lítil þátttaka kvenna í opinberu lífi er og hve lítið hefur breyst í fjarveru hans.

Það er nú einmitt málið að atvinnuþátttaka kvenna er lítil og völd þeirra í pólitík langt fyrir neðan heimsmeðaltal. Hlutfall kvenna á japanska þinginu er rúm 11% og 3 af 18 ráðherrum eru konur. Atvinnuþátttaka kvenna einkennist af svokallaðri “M kúrvu” þar sem konur streyma út á vinnumarkaðinn að loknu háskólanámi en svo tekur kúrvan skarpa beygju niður á við í kringum þrítugsaldurinn og rís svo hægt upp aftur í kringum fertugt en nær ekki sömu hæðum. Í Japan er venjan að stimpla sig bara út af vinnumarkaðnum annað hvort við hjónaband eða þegar fyrsta barnið fæðist. Það er víst afskaplega erfitt að koma aftur inn á vinnumarkað eftir að tímabili barnauppeldis lýkur, oft 10 árum síðar, og flestar konur eiga þá aðeins kost á illa launuðum hlutastörfum. Þannig að stöðuhækkanir og stjórnunarstöður eru ekki inni í myndinni fyrir móður á fimmtugsaldri.

Hér er "M-kúrvan". Bláa línan er atvinnuþátttaka kvenna 2009, sú græna atvinnuþátttaka kvenna 1995 og sú appelsínugula er atvinnuþátttaka karla 2009.

Skortur á fæðingarorlofi og dagvistun og svo auðvitað hinn mjög svo krefjandi vinnukúltúr Japana stuðla að þessu kerfi þar sem konur þurfa að velja á milli fjölskyldu og starfsframa. Sjálf verð ég oft örg yfir þessu fyrir hönd japanskra kvenna því ekki myndi ég vilja standa frammi fyrir þessu vali. Heimurinn er að sjálfsögðu ekki svarthvítur og sumar konur ná að samræma þetta tvennt, en eins og aðstoðarforstjóri P&G sagði á viðburði sem við héldum fyrr í haust, þá hefði hún náð þessum árangri í atvinnulífinu með góðri hjálp við börn og bú. Svo taldi hún upp hina góðu hjálp í þessari röð: Mamma hennar, móðursystir, dóttir og eiginmaður. Það stakk mig að hún taldi upp þrjár konur fyrst áður en minnst var á eiginmanninn. Þarna kristallaðist að þegar konur taka sér störf utan síns hefðbundna hlutverks færast þeirra kvenlegu skyldur yfir á aðrar konur.

Nú þegar ég loks skrifa eitthvað um Japan og jafnrétti geri ég mér grein fyrir að það er erfitt að koma öllu því sem ég hef lært síðastliðna 6 mánuði í eina litla færslu sem þegar er orðin of löng. Það má því búast við greinaflokki á næstunni.

Tuesday, October 12, 2010

Lady Di og pandabjörninn

Það má með sanni segja að líf mitt hafi breyst töluvert við flutningana til Japans. Ég gerði mér grein fyrir að ég myndi þurfa að læra nýja siði og takast á við tungumálaörðugleika en þó óraði mig ekki fyrir að það myndi verða af þeirri stærðargráðu sem raunin er. Ég hélt að þetta einskorðaðist við að hneigja sig, læra að borða með prjónum og vera í einhverjum vandræðum með að ganga frá flóknum hlutum. Veruleikinn er hins vegar allt annar. Hér þarf ég að takast á við nýja þjóðfélagsstöðu, svokallaða forréttindastöðu, og á sama tíma að vera mállaus og ólæs útlendingur.


Þannig er nefnileg mál með vexti að eins og fram hefur komið áður á þessari síðu þá er ég eins og hálfgerð prinsessa í þessu landi. Það hefur auðvitað ákveðna kosti en þó líka stóra galla sem ég er í mestu vandræðum með að venjast. Við öll þau undarlegu atvik sem upp koma og ég skil ekki þá þreytist samstarfskona mín seint á svara öllum spurningum mínum með sama svarinu: “Because you are Lady Di!”

Samstarfskona mín er búin að útskýra fyrir mér í díteila hvað Díana þurfti að gera sem prinsessa. Díana var alltaf vel til höfð, settlega klædd og í fullkomnu samræmi við tilefnið hverju sinni. Hún heilsaði fólki með brosi og sýndi áhuga á því sem það var að gera, spurði jafnvel einhverra spurninga um líðan þeirra eða störf. Díana braut ekki lög og hegðaði sér vel á almannafæri. Hún var meðvituð um að hún væri fyrirmynd og að látbragð hennar sem og gjörðir væru settar í beint samhengi við konungsfjölskylduna og jafnvel ímynd Englands.

Í framhaldi af þessu mætti kannski nefna að ég er búin að fá tiltal um hvernig ég eigi að sitja, brosa, sýna áhuga, kinka kolli þegar fólk talar þó að ég skilji ekki, ekki hreyfa puttana eins og ég geri alltaf, ekki teygja hálsinn til hliðar, hvenær ég má borða, hvenær ég má fara á klósettið, hvernig ég eigi að haga mér á almannafæri o.s.frv. o.s.frv.

Eins og fram kom í færslu Ragga þá vorum við einu sinni stöðvuð af lögreglunni þar sem hann var að reiða mig. Þar sem við vorum á hjóli í eigu Kvennasamtakanna lét ég þær vita af þessu. Í framhaldinu fékk ég skilaboð um að ég yrði að passa hvernig ég hegðaði mér, ég væri fyrirmynd, fólk tæki eftir mér og jafnvel þó að það viti ekki núna hver ég er þá myndi það kannski komast að því í framtíðinni. Þannig væri þetta mál sem varðaði ekki aðeins mig heldur Kvennasamtökin, UNIFEM og raunar Sameinuðu þjóðirnar í heild sinni. Ég get vottað það að það fellur í afskaplega grýttan farveg hjá femínista að vera að sagt að vera prúð og þæg.

"Who the hell are you?" gæti Díana verið að hugsa þarna.

Ég sá kvót um daginn í Díönu prinsessu þar sem hún sagði: “Það erfiðasta við að vera prinsessa er að þurfa að pissa”. Þetta minnti mig á “the banana incident”. Eftirfarandi samtal átti sér stað fyrir nokkru:

Samstarfskona: “Steinunn, borðaðirðu banana á ráðstefnunni um daginn?”
Ég: “Nei... ég keypti reyndar banana en ég borðaði hann ekki. Af hverju?”
Samstarfskona: “Æji, fólk segist hafa séð þig borða banana.”
Ég: “Ha? Af hverju er fólk að tala um það hvort ég borða banana eða ekki? Hver þykist hafa séð mig borða banana? Og af hverju skiptir það máli?”
Samstarfskona: “En þú fórst úr workshopinu til að fara á klósettið er það ekki?”
Ég: “Jú...”
Samstarfskona: “Og borðaðirðu ekki banana þegar þú fórst á klósettið?”
Ég: “Nei...”
Samstarfskona: “Fólk sagðist hafa séð þig borða banana.”
Ég: “Vá, kræst, af hverju er fólk að segja það og af hverju skiptir það máli?”
Samstarfskona: “Ég veit ekki af hverju fólk er að segja það, en ég átti alla vega að koma til þín skilaboðum um að þú ættir ekki að borða banana eða fara á klósettið nema þegar það eru þar til gerðar pásur.”
Ég: “Ég má sem sagt bara pissa þegar aðrir ákveða?”
Samstarfskona: “Já, nema það sé neyðar, neyðar tilfelli.”

Fólk hefur líka óeðlilegan áhuga á öllu sem ég geri og það minnir svolítið á hana Díönu heitna, ég meina þessir papparassar voru endalaust á eftir henni til að svala þörfum fólksins til vita allt og ekkert um hana. Ókei, fólk er ekki að mynda mig úti á götu en það er ótrúlegt hvað allt sem ég geri fréttist. Ég hitti til dæmis oft fólk sem segist hafa frétt af því að einhver önnur manneskja sem ég varla þekki hafi séð mig úti að hjóla eða á leiðinni í lestina. Vá, breaking news. Svo sér forkona Kvennasamtakanna alltaf ástæðu til þess þegar hún kynnir mig fyrir hópi fólks að segja frá því hvar ég versla í matinn! Ég skil ekki ennþá af hverju en kannski til að fullnægja sömu hvötum fólks og fær það til að skoða bleiku fréttirnar á Vísi.  Af þessum sökum hef ég haldið því kyrfilega leyndu að ég fari í líkamsrækt, nenni ekki að öllum sé tilkynnt hvar ég æfi.

Það er ekki nóg með að ég sé prinsessa heldur er ég líka pandabjörn. Það er í alvörunni stundum eins og fólk sé komið til að skoða mig. Mig þessu krúttlegu veru sem er svo sjaldgæf að ég er í útrýmingarhættu. Samstarfskona mín, nokkuð frústreruð yfir ástandinu, benti líka á um daginn að vegna þess að pandan er svo sérstök og sjaldgæf þá koma allir vel fram við hana, klappa henni og segja hvað hún sé góð og sæt. Hið sama á ekki við um dýrahirðina sem eiga að sjá til þess að pöndunni líði vel. Það má alveg skamma þá og skipta þeim út ef svo ber undir, nú eða bara eftir hentugleik.

"Mig langar til Íslands..."

Já manni líður stundum eins og einhverju viðrini þar sem fólk starir á mann úti á götu. Fullorðið fólk reynir þó (flest) að hemja sig en börnin hafa ekki enn verið félagslega forrituð til að vita að það er bannað að glápa. Þau eru nú voða krúttleg með augun sín stóru og hökuna ofan í bringu en mér finnst fullorðna fólkið sem snýr sig úr hálslið til að glápa ekki jafn sætt. En þá reyni ég bara að minnast orða samstarfskonu minnar: “To them you're a freaking panda!” um leið og tauta æðruleysi, æðruleysi...

Thursday, October 7, 2010

Aðalatriðið er að vinna, ekki að vera með.

Lítið hefur gerst á þessari síðu undanfarið en það hefur þó aðeins verið af einskærri tillitssemi við lesendur. Ég missti nefnilega alveg húmorinn fyrir nokkru síðan og hefur batinn verið hægur. Þeim sem vilja kynna sér hvers vegna bendi ég á kvikmyndina The Devil Wears Prada. Story of my life... Þannig að undanfarið hefur lítið komist að en nöldur yfir óréttlæti heimsins í minn garð en hefði ég ætlað mér að tileinka þetta blogg nöldri þá hefði ég að sjálfsögðu stofnað moggablogg.

En hvað um það. Ég fór á íþróttadaginn mikla í síðustu viku. Dagurinn var að sjálfsögðu íburðarmikill eins og allt sem Kvennasamtökin í Sakai gera. Til að mynda hófst mótið á opnunarhátíð sem hefði vel sómt sér á Ólympíuleikum.



Þarna er lúðrasveitin búin að koma sér fyrir sem sá um að leika marsa meðan hersingin þrammaði inn á völlinn.


Keppendur voru félagar í kvennasamtökunum úr hinum ýmsu hverfum borgarinnar.

 
Sum liðin voru í metnaðarfyllri búningum en önnur. Þarna eru enda á ferð sigurvegararnir frá því í fyrra. Þetta mót hefur sem sagt verið haldið árlega síðastliðin 40 ár! Skipulagið var í samræmi við það, allt skrifað í handrit með nákvæmum teikningum af öllum viðburðum dagsins.


Ég var að sjálfsögðu meðal heiðursgesta. Ekki skil ég af hverju öllum þessum jakkafataköllum er boðið að vera heiðursgestir á íþróttamóti kvenna sem haldið er af kvennasamtökum. Sumt bara breytist ekki og ætli híerarkíið í Japan sé ekki eitt af því. Ég lúkka svolítið þarna eins og eina konan sem er alltaf á myndinni með öllum hinum körlunum á G8 og G20 fundum. Fyrir utan guðmóðurina þarna á pallinum sem ekki fylgir á myndum af opinberum, alþjóðlegum fundum.




Á meðan liðin gengu inn á völlinn við dynjandi tónlist hrópaði mótsstýran ítrekað í míkrafóninn: "Munið að brosa til heiðursgestanna og vinka þeim! Já, vinka til heiðursgestanna og brosa! Brosa og vinka, koma svo!" Úff.... æjæj... kræst.


Þegar liðin voru öll búin að stilla sér upp í beinar raðir á leikvanginum, búið að ljúka við skylduræðuhöldin og fara í gegnum óendanlegar seremóníur hófst upphitunin.

Ég tók að sjálfsögðu þátt af fullum krafti enda orðin nokkuð vel kunnug þessari æfingaröð. Þetta er eitthvað píanólag með karli sem talar yfir hvaða æfingar maður á að gera. Þetta ágæta píanólag er til dæmis spilað á klukkutíma fresti í sundlaugargarðinum sem við Raggi heimsóttum í sumar. Mjög merkilegt að verða vitni að því að það taka bókstaflega allir þátt á sundfötunum, einu sinni á hverri klukkustund.


Ég ætti kannski að redda mér þessu lagi og gera æfingarnar á hverjum morgni.


Ljósmyndari UNIFEM að þessu sinni var Raggi og var hann að sjálfsögðu kyrfilega merktur kvennasamtökunum með borða á upphandlegg og þessu forláta deri. Töff, töff, töff.


Der þykja hinn eðlilegasti höfuðbúnaður í Japan enda sést fólk afar sjaldan með sólgleraugu. Þessi voru svona fagurbleik með hinu alþjóðlega kvennamerki á. Hafi Femínistafélag Íslands áhuga á að gera der sem þessi að hluta af einkennisbúningi sínum gæti ég látið flytja gám af þessu heim.


Svo var komið að því að hefja keppni. Fyrsta grein dagsins: Samlokublöðruhlaup.


 Raggi og forkonan voru æði samstillt...

 
...og gáfu allt sem þau gátu. Annars eins hraði hefur ekki mælst í 40 ára sögu íþróttaleikanna.

 
Þetta fannst mér skemmtileg grein. Sundboltar á badmintonspaða lúkka svona helvíti vel.


Vel tekið á því.


Ég var líka hrifin af þessari grein. Tvö lið keppa sem sagt í einu. Öðrum megin er hvíta liðið...

 
...og hinu megin er rauða liðið. Það lið sem kemur fleiri boltum í körfuna á tilteknum tíma vinnur.


Svo var komið að mér að spreyta mig á ný. Nú í boðhlaupi þar sem á miðri leið þurfti að bíta niður japanska bollu með sætu baunakremi. Fólk bara skilur ekki af hverju mér finnst súkkulaði betra en sykraðar baunir.


Og hlaupa svo með bolluna í kjaftinum til baka.


Aðalviðburður dagsins var að sjálfsögðu UNIFEM hjólastólarallið. Mér skilst reyndar að það hafi orðið dómaraskandall í keppninni þar sem einver tók fram úr í innri hring sem er auðvitað alveg bannað. Svo var reyndar ein kellan alveg að tapa sér úr bræði yfir því að hjólin á stólnum hennar væru eitthvað minni en á hinum stólunum. Þannig sætu ekki allir keppendur við sama borð og það væri að sjálfsögðu hneisa og svindl.


Ég var látin hlaupa með keppendunum í UNIFEM-rallinu af því að ég er holdgervingur UNIFEM.


Svo mætti auðvitað flautukórinn á svæðið og blés af sinni alkunnu snilld.


Svo þurfti ég að sinna skyldum mínum sem forseti. Þarna er ég sem sagt að labba hringinn á leikvanginum ásamt forkonu kvennasamtakanna og vinka öllum keppendum og gestum. Hér með vil ég biðja vini og vandamenn að stöðva mig ef mér dettur einhvern tímann í hug að fara í forsetaframboð. Mér finnst skelfilega leiðinlegt, hallærislegt og kjánalegt að standa í þessu vinki og fá í staðinn óverðskuldaða aðdáun frá einhverjum hópi fólks sem finnst ég vera sæt og með fínan titil.


Klassíkerinn reipitog. Raggi var í hinu liðinu og vildi meina að hann hefði hjálpað mínu liði mikið með því að reyna ekkert á sig.


Hann vissi ekki þá að til væri mynd sem sannar annað.


Við unnum nú samt og þarna er ég ásamt liðsfélögum úr reipitoginu sem voru æsispenntir yfir því að stilla sér upp á mynd með mér.


Að lokum veitti forkonan verðlaun fyrir 1. og 2. sætið. Það var sama lið sem sigraði í ár og í fyrra. Þar var greinilega stíft æft allt árið.