Svo er það líka þannig að ég þekki ekki marga hér en því er ekki öfugt farið. Það eru sem sagt rosalega margir sem þekkja mig. Um daginn var verið að kynna mig fyrir borgarfulltrúa hér í Sakai og þegar hann sá mig sagði hann: “Já þú! Ég hef séð þig úti að hjóla.” Nákvæmlega sömu setningu hef ég reyndar heyrt frá fleira fólki sem ég er að hitta í fyrsta sinn! Velgjörðakona mín hér í Sakai var svo að spjalla við vin sinn sem var að opna nýja matvöruverslun. Hún talar um UNIFEM við alla og fer að tala um mig og hann svarar: “Já hún! Ég hef séð hana í búðinni minni að versla.” Í gær kallaði kona til mín úti á götu: “Steinunn-san” og sagði svo eitthvað á japönsku sem ég skildi ekki. Ég kannast ekkert við þessa konu en hún vissi upp á hár hver ég er.
Eftifarandi samtal átti sér svo stað um daginn við félaga minn sem vinnur í sama húsi.
Félagi: “Lítur kærastinn þinn líka út eins og Hollywoodstjarna?”
Ég: “Ha!? Uhh... Jáá?.”
Félagi: “Eins og hver er hann? Er hann eins og Johnny Depp?”
Ég: “Neiiii.... hann er með miklu meira skegg”
Félagi: “Ó já! Kærastinn þinn er eins og Sean Connery.”
Ég reyndi eitthvað að benda á að Sean væri 50 árum eldri en Raggi en viðmælandi minn var líklega með einhverja yngri útgáfu af Sir Connery í huga.

Ég og Raggi, eins og við lítum út í huga Japana, á góðri stundu.
7 comments:
Haha, Steinunn-san :) Gott að vera orðin svona ofboðslega fræg, þeir taka í höndina á þér, heilsa þér .
Ég er að deyja...
:D þetta verður bara betra og betra og fyndnari og fyndnari færslur! Ég virkilega grét úr hlátri yfir litlu öndinni hérna fyrir neðan :) Greinilegt að UNIFEM græðir mikið á að hafa Steinunni-san-flaggskipið í Japan!
Kæri/a Anonymus, vinsamlegast ekki deyja, alla vega ekki áður en þú segir mér hver þú ert!
Skemmtilegar færslur hjá þér! Og góð mynd af ykkur í lokin hehheh ;-) Svona eruð þið alltaf í mínum huga sko! :-)
Til hamingju með gærdaginn, 19.júní!
Kv. Kristjana (systir Ragga)
Selma (mamma hans Ragga) er að vinna með mér og sagði mér frá blogginu þínu. Ég er búin að lesa mig í gegnum færslurnar þínar og þú ert rosalegur góður penni með húmorinn á réttum stað. Skemmtilegast færslan sem ég las var sennilega Öndin, ég grenjaði úr hlátri. Eins og Selma hefur maður oft farið í þennan leik með börnunum á leikskólanum, tær snilld. Það verður gaman að fylgjast með ævintýrum þínum í Japan.
Kveðja Erna Björk
Post a Comment